Fastir pennar

Já fyrir atvinnu og uppbyggingu

Ólafur Stephensen skrifar
Hverjir ættu að setja krossinn við já á kjörseðlinum í Icesave-kosningunni í dag?

Það ættu þeir klárlega að gera sem vilja ljúka stjórnmáladeilum og lögfræðiþrefi við nágranna- og vinaríki okkar og tryggja Íslandi þann stuðning og samstarf sem við þurfum á að halda til að vinna okkur út úr efnahagskreppunni.



Þeir ættu sömuleiðis að kjósa já sem vilja ljúka Icesave-málinu með samningi og hafa þar með stjórn á niðurstöðunni og hversu dýr hún verður okkur. Ef höfðað verður dómsmál á hendur Íslandi, sem er nokkurn veginn öruggt kjósi meirihluti nei í dag, getur svo farið að niðurstaðan verði miklu dýrari en Icesave-samningurinn sem nú liggur fyrir. Það er vel skiljanlegt að fólki þyki súrt að þurfa að borga fyrir vondar ákvarðanir útrásarvíkinga og vanhæfra stjórnmála- og embættismanna, en annars vegar erum við nú þegar búin að borga miklu meira en nemur Icesave-samningnum og hins vegar viljum við ekki taka þá áhættu að enda með að borga meira en við þurfum.



Þeir sem vilja snúa vörn í sókn gegn atvinnuleysinu og koma atvinnuuppbyggingu aftur á skrið ættu að segja já. Annars er hætta á að lánshæfiseinkunn Íslands falli og erlendar lántökur ríkissjóðs komist í uppnám. Þá verður áfram erfitt að fá peninga inn í landið, hvort heldur er erlent lánsfé eða beina fjárfestingu. Dragist málið á langinn fjölgar störfum því ekki eins og þarf og ekki verður heldur hægt að tryggja þá kaupmáttaraukningu almennings sem vonir standa til. Þar á ofan yrðu auknar byrðar lagðar á ríkissjóð, sem þýðir að minna yrði afgangs til að standa undir velferðarkerfinu og margvíslegri annarri opinberri þjónustu.



Atkvæðagreiðslan í dag snýst um hvort Ísland hyggist standa skil á innistæðutryggingum Icesave-reikninganna, ekki eitthvað allt annað.



Hún snýst til dæmis ekki um Evrópusambandið. Þeir sem vilja hindra að Ísland gangi í þann félagsskap fá tækifæri til að segja hug sinn í annarri þjóðaratkvæðagreiðslu.



Atkvæðagreiðslan snýst ekki heldur um ríkisstjórnina. Þeir sem vilja losna við hana eiga alls ekki víst að kross við nei beri þann árangur. Stjórnarandstöðuna skortir afl á þingi til að bera fram vantraust á stjórnina. Hún hefur sjálf alls ekki gefið til kynna að nei í Icesave-kosningunni þýði að hún fari frá, ekki fremur en önnur tilefni sem stjórnin hefur fengið til að pakka saman og boða til kosninga. Þvert á móti er líklegast að stjórnin sitji sem fastast.



Tilhugsunin um tvö ár enn af atvinnustefnu núverandi ríkisstjórnar og afleiðingar af höfnun Icesave-samkomulagsins þar ofan á er raunar lítt bærileg.






×