Lífið

Umdeilt myndband

umdeilt myndband Nýjasta myndband Lady Gaga verður vafalítið afar umdeilt.
umdeilt myndband Nýjasta myndband Lady Gaga verður vafalítið afar umdeilt.
Söngkonan Lady Gaga sendir á föstudaginn langa frá sér myndband við lagið Judas. Það er annað smáskífulagið af væntanlegri plötu hennar Born This Way. Í myndbandinu er Gaga klædd sem María Magdalena og hafa ljósmyndir úr því þegar vakið mikla hneykslan hjá fjölda trúarhópa.

„Hún er að reyna að notfæra sér kristindóminn til að breiða yfir hæfileikaleysi sitt og hundleiðinlega sviðsframkomu,“ sagði einn trúarleiðtoginn. Ekki eru allir óánægðir með Gaga því Harry Potter-stjarnan Daniel Radcliff hefur lýst yfir ánægju sinni með stuðning söngkonunnar við réttindi samkynhneigðra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.