Lífið

Spears í myndasögu

Teiknað líf Britney Spears verður brátt að myndasöguhetju þegar líf hennar verður teiknað upp í bókstaflegri merkingu.
Teiknað líf Britney Spears verður brátt að myndasöguhetju þegar líf hennar verður teiknað upp í bókstaflegri merkingu.
Líf Britney Spears mun brátt birtast í myndasöguformi. Það er myndasögufyrirtækið Bluewater sem stendur fyrir því en það hefur áður gert sér mat úr hrakfallasögu Lindsay Lohan, velgengni Lady Gaga og ástarsambandi Twilight-stjarnanna Robert Pattinson og Kristen Stewart.

Britney hefur auðvitað lifað tímana tvenna og hefur verið undir stanslausri smásjá fjölmiðla síðan smellurinn Hit Me Baby tröllreið heimsbyggðinni.

Frægast er þó sennilega þegar hún virtist fá hálfgert taugaáfall í beinni, rakaði af sér allt hárið og var að lokum flutt burt með sjúkrabíl af heimili sínu árið 2008.

„Hún er miklu flóknari heldur en fólk gerir sér grein fyrir. Á bak við listamanninn er manneskja sem hefur þurft að glíma við ýmis vandamál og berjast fyrir tilverurétti sínum.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.