Lífið

Milljónir í skaðabætur

fær skaðabætur Leikkonan Sienna Miller fær að öllum líkindum tæpar nítján milljónir í skaðabætur.
fær skaðabætur Leikkonan Sienna Miller fær að öllum líkindum tæpar nítján milljónir í skaðabætur.
Breska leikkonan Sienna Miller fær að öllum líkindum greiddar tæpar nítján milljónir króna í skaðabætur eftir að götublaðið News Of The World játaði að hafa brotist inn í farsímann hennar.

Réttarhöld í málinu hafa staðið yfir að undanförnu og verður dómur kveðinn upp á næstu dögum. Fjögur önnur fórnarlömb News Of The World hafa þegar samið um skaðabætur utan dómstóla, þar á meðal upplýsingafulltrúinn Max Clifford. Talið er að hann hafi fengið um 190 milljónir króna fyrir sinn snúð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×