Innlent

Hjóluðu 831.000 kílómetra í átaki

Fólk á öllum aldri hefur tekið þátt í gegnum árin.
fréttablaðið/valli
Fólk á öllum aldri hefur tekið þátt í gegnum árin. fréttablaðið/valli
Mun fleiri tóku þátt í átakinu Hjólað í vinnuna nú en í fyrra. Rúmlega ellefu þúsund manns tóku þátt frá 694 vinnustöðum í 1.628 liðum sem skráð voru til leiks.

Alls lagði þessi stóri hópur tæplega 831 þúsund kílómetra að baki og er áætlað að þannig hafi sparast 150 tonn af koltvísýrings útblæstri og fimmtán milljónir í eldsneytiskaup og 28 milljón kaloríur hafi verið brenndar í leiðinni.

Ferðamátinn var í sjö af hverjum tíu tilfella á hjóli á móti þeim sem kusu að ganga.- shá




Fleiri fréttir

Sjá meira


×