Innlent

Sló mann með glerglasi í andlit

Mynd/Haraldur
Ein líkamsárás var kærð til lögreglunnar á Selfossi um nýliðna helgi. Atvikið átti sér stað um þrjúleytið að næturlagi við skemmtistaðinn 800 Bar á Selfossi. Þar hafði maður slegið annan mann í andlitið með bjórglasi.

 

Sá sem varð fyrir högginu hlaut skurð á enni. Árásarmaðurinn var handtekinn og færður til yfirheyrslu í lögreglustöðinni. Skömmu áður hafði maðurinn brotið þrjár rúður á skemmtistaðnum.-jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×