Innlent

Skora á Jón að sinna börnum

Undirskriftirnar afhentar. Jón tók við listanum í Ráðhúsinu í gær.
Mynd/Valli
Undirskriftirnar afhentar. Jón tók við listanum í Ráðhúsinu í gær. Mynd/Valli
Jón Gnarr borgarstjóri tók í gær við undirskriftum um ellefu þúsund manna, sem skora á hann að veita börnum sem verða vitni að heimilisofbeldi tilhlýðilegan stuðning.

 

Samtökin Barnaheill – Save the Children á Íslandi stóðu að undirskriftasöfnuninni. Hún var gerð í kjölfar rannsóknar samtakanna sem var kynnt í febrúar, en hún leiddi í ljós að börnum stæðu ekki næg úrræði til boða af hálfu félagslega kerfisins í Reykjavík og að samráð skorti á milli stofnana sem að málaflokknum kæmu. - sh




Fleiri fréttir

Sjá meira


×