Innlent

Hraðamyndavélar í notkun

Mynd/Pjetur
Nýjar hraðamyndavélar verða teknar í notkun á Kjalarnesi við Árvelli á morgun. Myndavélarnar eru á hringveginum. Uppsetning vélanna, sem eru tvær, er liður í umferðaröryggisáætlun stjórnvalda, sem miðar að því að draga úr hraða á þjóðvegum og fækka slysum.

 

Myndavélarnar eru stafrænar og upplýsingar um hraðabrot verða sendar lögreglu samstundis. Ekki verða teknar myndir nema um brot sé að ræða.- þeb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×