Innlent

Flestir keppa á dísilbílum

Farið var eftir öllum kúnstarinnar reglum þegar fyllt var á eldsneytistankana.Fréttablaðið/Stefán
Farið var eftir öllum kúnstarinnar reglum þegar fyllt var á eldsneytistankana.Fréttablaðið/Stefán
Sigurrós Pétursdóttir hrósaði sigri í árlegri sparaksturskeppni FÍB og Atlantsolíu sem fór fram í gær. Takmarkið var að eyða sem minnstu eldsneyti á 142 kílómetra leið og tóku 25 bílar þátt í keppninni að þessu sinni, þar af 20 dísilbílar.

 

Sigurrós, sem keppti á Toyota Yaris með dísilvél, reyndist hlutskörpust þar sem hún eyddi aðeins 2,63 lítrum á hundraðið, en næstu tveir voru rétt undir þremur lítrum.- þj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×