Innlent

Upphæð bóta til fórnarlamba ofbeldis óbreytt í 15 ár

Ríkissjóður greiðir 130 til 160 milljónir króna á ári til þolenda ofbeldisbrota. Hámarksbætur fyrir líkamstjón eru 2,5 milljónir króna en 600 þúsund fyrir miska. Bæturnar eru margfalt hærri í nágrannalöndum.
Ríkissjóður greiðir 130 til 160 milljónir króna á ári til þolenda ofbeldisbrota. Hámarksbætur fyrir líkamstjón eru 2,5 milljónir króna en 600 þúsund fyrir miska. Bæturnar eru margfalt hærri í nágrannalöndum. Mynd/Stefán
Bætur úr ríkissjóði til þolenda ofbeldisbrota hafa verið óbreyttar frá árinu 1996 og eru langtum lægri en bætur í nágrannalöndunum. Um 130 til 160 milljónir króna eru greiddar úr ríkissjóði ár hvert til þolenda ofbeldisbrota. Frá 2006 hafa borist um 400 umsóknir á ári um bætur. Um 25 prósentum umsóknanna er hafnað.

 

Hámarksbætur sem ríkissjóður greiðir fyrir líkamstjón eru 2,5 milljónir króna en fyrir miska 600 þúsund krónur. Ef um kynferðisbrot er að ræða greiðir ríkið eingöngu miskabætur, segir Halldór Þormar Halldórsson, lögfræðingur hjá Sýslumanninum á Siglufirði, sem hefur umsjón með greiðslu bótanna.

 

„Algengt er að þolendum kynferðisbrota séu dæmdar bætur upp á 800 þúsund krónur til 1,5 milljónir. Ef um alvarlegt brot er að ræða eru dæmdar bætur 1,2 til 3 milljónir króna, sem er það hæsta sem ég hef séð. Ríkið borgar hins vegar aldrei meira en 600 þúsund krónur," segir Halldór. „Þolendur kynferðisbrota eru í langflestum tilfellum konur. Karlar fá yfirleitt greidda alla upphæðina sem þeim er dæmd í bætur vegna líkamsárásar," segir hann. Hann segir marga lögmenn hafa bent á þetta misræmi.

 

Lög sem bæturnar eru greiddar eftir eru frá 1995. „Samkvæmt þeim áttu hámarksbætur fyrir líkamstjón að vera 5 milljónir króna en fyrir miska 1,2 milljónir. Gildistöku laganna var frestað um eitt ár. Í breytingarfrumvarpi voru bæturnar lækkaðar um helming í sparnaðarskyni."

 

Halldór bendir á að íslensku lögin hafi verið samin upp úr dönskum lögum. „Þetta fyrirkomulag var alls staðar í hinum vestræna heimi og þetta var gert til þess að létta göngu brotaþola. Í 99 prósentum tilvika fengust engar bætur greiddar. Bæturnar hér á landi eru hins vegar miklu lægri en til dæmis á hinum Norðurlöndunum. Í Noregi eru hámarksbætur 40 til 50 milljónir króna miðað við núverandi gengi en í Svíþjóð tæplega 30 milljónir."- ibs




Fleiri fréttir

Sjá meira


×