Innlent

Ágústi hlíft gegn þátttöku í Exeter-fléttunni

Aðalmeðferð málsins lýkur í dag með málflutningi saksóknara og verjenda Ragnars Z. Guðjónssonar (til vinstri), Jóns Þorsteins Jónssonar (í miðið) og Styrmis Þórs Bragasonar.
Aðalmeðferð málsins lýkur í dag með málflutningi saksóknara og verjenda Ragnars Z. Guðjónssonar (til vinstri), Jóns Þorsteins Jónssonar (í miðið) og Styrmis Þórs Bragasonar. Mynd/GVA
Dómsmál Daginn eftir að MP banki hótaði að gjaldfella lán til félags í eigu Ágústs Sindra Karlssonar, nánasta viðskiptafélaga Margeirs Péturssonar, fékk sama félag 50 milljóna lán frá bankanum sem framlag í Exeter-fléttuna svokölluðu. Tölvupóstsamskipti benda til þess að Ágúst Sindri hafi sloppið við gjaldfellinguna gegn þátttöku í fléttunni.

 

Þetta kom fram á öðrum degi aðalmeðferðar Exeter-máls sérstaks saksóknara á hendur fyrrverandi forsvarsmönnum Byrs og MP banka í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.

 

Ágúst Sindri stofnaði MP banka á sínum tíma með Margeiri Péturssyni og starfaði fyrst og fremst fyrir bankann til ársins 2007. Í miðju bankahruni var Ágúst látinn vita af því að fleiri en eitt útistandandi lán MP banka til félagsins ÁSK ehf. yrðu gjaldfelld.

 

Ágúst bar fyrir dómi í gær að hann hefði verið verulega ósáttur við þá ákvörðun, enda hefði hann átt 20 milljóna innistæður í MP banka sem hefðu dugað fyrir afborgunum af lánunum. Hann hefði boðað úrsögn úr öllum stjórnum á vegum bankans vegna þessa.

 

Nokkrum dögum síðar sendi hins vegar Thomas Skov Jensen, yfirmaður áhættustýringar MP banka, tölvupóst á Jóhann Tómas Sigurðsson, regluvörð bankans, sem innihélt svohljóðandi skilaboð: „ÁSK var ekki gjaldfellt vegna Byr-dílsins.“

 

Þeir sem málinu tengjast sögðust fyrir dómnum ýmist ekki þekkja til þessa tölvupósts eða ekki vita til hvers hinn svokallaði „Byr-díll“ vísaði. Af orðum saksóknara mátti hins vegar skilja að hann teldi ljóst að Ágúst hefði fengið slaka hjá stjórnendum Byrs gegn því að taka þátt í Exeter-fléttunni.

 

Deginum eftir að hótað var að gjaldfella lán ÁSK ehf. fékk félagið nefnilega annað 50 milljóna króna lán frá MP banka, með sjálfskuldarábyrgð annars félags Ágústs sem nú er eignalaust. Það fé var síðan lánað áfram inn í Tæknisetrið Arkea, síðar Exeter, sem eiginfjárframlag í viðskiptunum með stofnfjárbréf í Byr.

 

Byr lánaði fyrir þeim viðskiptum og með því var öll áhætta af stofnfjárbréfunum færð frá MP banka og starfsmönnum og stjórnarmönnum Byrs, yfir á Byr sjálfan. Um það snýst Exeter-málið; að sakborningarnir þrír, Ragnar Z. Guðjónsson, fyrrverandi sparisjóðsstjóri Byrs, stjórnarformaðurinn Jón Þorsteinn Jónsson og Styrmir Þór Bragason, fyrrverandi forstjóri MP banka, hafi stefnt fé Byrs í mikla hættu með ólögmætum lánveitingum.

 

Það var Margeir Pétursson sem kynnti þá hugmynd fyrir Ágústi Sindra að fjárfesta í stofnfjárbréfum í Byr. Ágúst sagði fyrir dómnum að sér hefði þótt það álitlegur kostur, enda hefði hann haft trú á að Byr yrði fyrr en síðar í lykilstöðu á fjármálamarkaði og að bitist yrði um fyrirtækið.

 

Margeir gaf símaskýrslu frá borginni Lviv í Úkraínu, þar sem hann er búsettur. Hann sagðist ekki skilja hvað átt væri við í tölvupósti Thomasar Skov um „Byr-dílinn“.

 

Síðasti dagur aðalmeðferðar málsins verður í dag. Þá munu saksóknari og verjendur flytja mál sitt.stigur@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×