Telur fótunum varla kippt undan útgerðinni 16. júní 2011 11:00 Þórólfur Matthíasson Umsögn prófessorsins hefur verið gerð opinber.
Umsögn Þórólfs Matthíassonar, prófessors í hagfræði við Háskóla Íslands, á hagrænum áhrifum stóra kvótafrumvarps ríkisstjórnarinar hefur verið gerð opinber. Umsögnina vann hann að beiðni ríkisstjórnarinnar. Þórólfur gerir ýmsar athugasemdir við frumvarpið en segir þrátt fyrir það varla hægt að tala um að grundvelli undir útgerð sé kippt á brott með hækkun veiðigjalds. Hreinn hagnaður útgerðarinnar árið 2009 hefði verið sautján milljarðar miðað við frumvarpið, í stað tuttugu milljarða. Önnur ákvæði frumvarpsins muni að vísu draga frekar úr hagnaði en erfiðara sé að meta nákvæm áhrif. Í umsögninni segir Þórólfur of langt gengið við að draga úr ávinningi af sölu varanlegra heimilda og að víðtækar heimildir sem ráðherra eru veittar séu varhugaverðar. Þá muni takmarkanir á framsali og stjórnvaldsstýrð tilfærsla milli útgerðarflokka draga úr hagnaði og afrakstri. Áhrif frumvarpsins á fjárhag einstakra útgerða eru sögð fara mjög eftir skuldastöðu þeirra. Verst settu fyrirtækin þurfi líklega að fara í gegnum fjárhagslega endurskipulagningu en rekstrargrundvöllur greinarinnar verði enn til staðar. Loks segir Þórólfur að hægt væri að beita mun vægari úrræðum og ná betri árangri sé markmiðið með frumvarpinu að ná inn tekjum af auðlindinni og nota þær í þágu eigenda hennar.- mþl
Mest lesið „Skrýtinn“ höggstaður á Trump sem snýr sér að kynþætti Harris Erlent Nauðgunarbrandari Patriks féll í grýttan jarðveg Innlent Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Innlent Gul viðvörun í Eyjum fram á kvöld og leiðindaspá áfram Veður Sjálfstæðisflokkurinn í „meiriháttar vandræðum“ Innlent Fimm í fangaklefa þegar mest lét í Eyjum Innlent Sóttu veikan ferðamann í éljagangi og fimm metra öldum Innlent Bílarnir ónýtir og tveir fluttir á sjúkrahús Innlent Ekki talinn í lífshættu eftir hnífsstungu á Akureyri í nótt Innlent „Ótrúlegt“ að Halla hafi ekki verið fyrsta frétt RÚV Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðisflokkurinn í „meiriháttar vandræðum“ Sóttu veikan ferðamann í éljagangi og fimm metra öldum Hnífstunguárás á Akureyri og vandræði hjá Sjálfstæðisflokknum Fimm í fangaklefa þegar mest lét í Eyjum Ekki talinn í lífshættu eftir hnífsstungu á Akureyri í nótt Mátti litlu muna að eldur í gámi bærist í hús Íslendingar öllu veðri vanir Ganga frá Hallgrímskirkju og spila hljóð frá sprengjuregni Kjósendur VG leiti nú til Sósíalista Bílarnir ónýtir og tveir fluttir á sjúkrahús Sló bíl með golfkylfu eftir átök milli fíkniefnasala og kaupanda Íslendingur vann tæpar 37 milljónir í Eurojackpot „Það er í raun og veru allur bransinn sem er í hættu“ Nauðgunarbrandari Patriks féll í grýttan jarðveg Sósíalistar sem ætla á þing og þjóðhátíð í beinni „Ótrúlegt“ að Halla hafi ekki verið fyrsta frétt RÚV Vara við væntanlegum fjölda netsvika um helgina Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Sex sérsveitarmenn í Eyjum og lagt hald á tvo hnífa Meiri umferð um Vesturlandsveg en Suðurlandsveg Eitthundrað ár frá fyrsta flugi til Íslands Grunuð um að flytja fíkniefni til landsins með tólf ára son í för Það séu vonbrigði ef fyrirtæki hækki verð úr hófi Kveikur frá Stangarlæk fallinn Hvalfjarðargöngin opnuð á ný Strandavegur í sundur og ferðamaður festi sig í flýti Auknar líkur á að eldgos hefjist á næstu dögum Allir ættu að komast leiðar sinnar þrátt fyrir viðvörun Telur stöðu heimsmála hafa áhrif á fylgið Aukin skjálftavirkni, óviðunandi fylgi og óveður í Eyjum Sjá meira