Lífið

Robbie beraði sig á tónleikum

Ekki spéhræddur Robbie Williams slysaðist til að sýna sitt allra heilagasta á tónleikum í Dublin.
Ekki spéhræddur Robbie Williams slysaðist til að sýna sitt allra heilagasta á tónleikum í Dublin.
Robbie Williams sýndi 82.300 áhorfendum sitt allra heilagasta á Take That tónleikum í Dublin á laugardaginn.

Williams var í miðjum söngkafla í laginu Rock DJ þegar typpi söngvarans slapp úr buxunum.

„Þetta var frekar villt atriði svo það kom ekkert á óvart þegar það datt út. Hann var heldur ekkert að flýta sér að hylja sig,“ sagði einn áhorfandinn. Þetta er þó ekki í fyrsta skipti sem söngvarinn berar sig. Árið 1999 gekk hann allsber inn á svið á tónleikum í Atlanta og í janúar tók hann upp afmæliskveðju handa félaga sínum úr Take That, Gary Barlow, á Adamsklæðunum.

Tónleikar Take That í Dublin þóttu ansi magnaðir og Williams sjálfur átti ekki orð yfir áhorfendurna á bloggsíðu sinni.

„Guð minn góður, Írland!!!!!!!! Hvað gerðist eiginlega á sunnudaginn. Ég gaf allt í þessa tónleika en þið voruð miklu betri,“ skrifar Williams og bætir síðan um betur: „Þessir tónleikar breyttu lífi mínu, þeir munu lifa með mér um aldur og ævi.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.