Flugið ódýrara en rútuferð 28. júní 2011 08:30 Framkvæmdastjóri Sterna segir að þrátt fyrir mikinn afslátt sé erfitt að fá fólk til að ferðast með rútum. Mynd/GVA
Töluvert dýrara er að ferðast á milli Akureyrar og Reykjavíkur með rútu en með Flugfélagi Íslands. Ódýrasta flugfargjaldið á milli bæjarfélaganna er 7.990 krónur en rútuferðin með fyrirtækinu Sterna, sem er eina hópferðafyrirtækið sem sinnir þessum leiðum, kostar 11.000 krónur. Flugtími á milli er um 45 mínútur en rútuferðin tekur um sex klukkustundir. Rúturnar taka mest um fimmtíu farþega í sæti og segir Óskar Stefánsson, framkvæmdastjóri Sterna, að afar fátítt sé að bílarnir séu fullsetnir. „Það er virkilegt happdrætti hvort við fáum fimmtíu manns,“ segir hann. Meðalfjöldi farþega í ferðunum sé um fimmtán. Meðalrúta fer með um 130 lítra af eldsneyti á leiðinni á milli Akureyrar og Reykjavíkur, sem gerir um 31.000 krónur fyrir fyrirtækið. Bílstjóri fær greitt fyrir tíu klukkustunda vinnu og segir Óskar að þegar allt sé dregið saman sé kostnaður fyrirtækisins um 100 þúsund krónur fyrir hverja ferð. Á síðasta ári bauð Sterna fimmtíu prósenta afslátt af öllum fargjöldum. Óskar segir það þó ekki hafa virkað sem skyldi og hefur ekki trú á því að hægt sé að kaupa fólk í rúturnar með lágum fargjöldum. Árið 2009 var rukkað fullt gjald og var farþegatalan það ár hærri en í fyrra. „Þetta virkaði ekki. Ég held að við séum orðin svo háð einkabílum og öðrum samgönguleiðum,“ segir hann. „Við ráðum ekkert við þessa samkeppni.“ Fokker 50-vélar Flugfélags Íslands taka fimmtíu manns í sæti og eru það algengustu vélarnar sem fljúga á milli Akureyrar og Reykjavíkur. Leiguflug á milli staða kostar um 350 þúsund krónur og séu öll sæti seld er kostnaðurinn á mann 7.000 krónur. Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands, segir það færast í aukana að stórir hópar nýti sér flugferðir á milli staða. Árni segir þó að eldsneytisverð bitni mikið á flugfélögunum og sá kostnaður vegi mjög þungt. „Um tuttugu prósent af okkar kostnaði eru eldsneyti og um leið og olíuverð hækkar lendir það alveg jafn mikið á okkur og hinum almenna neytanda,“ segir hann. „En við erum að reyna að halda aftur af verðhækkunum, sem virðist vera að bera þann árangur að farþegum fjölgar.“- sv
Mest lesið Fékk besta nafnið frá frú Vigdísi Innlent Sakborningur í pottamálinu grunaður um tilraun til manndráps Innlent Í eðli okkar að fylgjast með náunganum Innlent Vildu að Navalní yrði hluti af fangaskiptunum sögulegu Erlent Sérsveitin skarst í leikinn þegar unglingar slógust í Mjódd Innlent Hvalfjarðargöngin opnuð á ný Innlent Grunuð um að flytja fíkniefni til landsins með tólf ára son í för Innlent Lést af völdum sprengju sem var falin fyrir tveimur mánuðum Erlent Sex sérsveitarmenn í Eyjum og lagt hald á tvo hnífa Innlent Strandavegur í sundur og ferðamaður festi sig í flýti Innlent Fleiri fréttir Sósíalistar sem ætla á þing og þjóðhátíð í beinni „Ótrúlegt“ að Halla hafi ekki verið fyrsta frétt RÚV Enginn skömm í að verða fyrir netsvikum Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Sex sérsveitarmenn í Eyjum og lagt hald á tvo hnífa Meiri umferð um Vesturlandsveg en Suðurlandsveg Hundrað ár í dag frá fyrsta flugi til Íslands Grunuð um að flytja fíkniefni til landsins með tólf ára son í för Það séu vonbrigði ef fyrirtæki hækki verð úr hófi Kveikur frá Stangarlæk fallinn Hvalfjarðargöngin opnuð á ný Strandavegur í sundur og ferðamaður festi sig í flýti Auknar líkur á að eldgos hefjist á næstu dögum Allir ættu að komast leiðar sinnar þrátt fyrir viðvörun Telur stöðu heimsmála hafa áhrif á fylgið Aukin skjálftavirkni, óviðunandi fylgi og óveður í Eyjum Sakborningur í pottamálinu grunaður um tilraun til manndráps Sjálfstæðismenn taki „óviðunandi“ fylgi alvarlega Sérsveitin skarst í leikinn þegar unglingar slógust í Mjódd Auknar líkur á skriðuföllum um helgina Úrkoman í júlí sló met Fólk eigi að gera ráð fyrir innbrotum Í eðli okkar að fylgjast með náunganum Fékk besta nafnið frá frú Vigdísi Hópar slógust en enginn ætlar að kæra „Hér er um fullkomlega eðlileg viðskipti að ræða“ Hlý og góð tilfinning að mæta á Bessastaði Borinn niður af klettaborginni VG mælist með 3,5 prósent Furðar sig á kjötafurðarstöðvunum Sjá meira