Gerir heimildarmynd um Gauja Þórðar 28. júní 2011 09:00 „
Ég vinn þetta bara í hjáverkum, ég gríp í þetta þegar tækifæri gefst til," segir Trausti Salvar Kristjánsson, knattspyrnuáhugamaður með meiru. Hann vinnur að heimildarmynd um Guðjón Þórðarson, núverandi þjálfara BÍ/Bolungarvíkur. Trausti var á vellinum þegar BÍ/Bolungarvík vann óvæntan sigur á liði Íslandsmeistaranna í Breiðabliki í Valitor-bikarkeppninni í síðustu viku. Hann var með myndavél festa við varamannaskýlið og gat með því móti náð öllum svipbrigðum Guðjóns þegar leikar stóðu hæst. „Ég hef einnig fengið að fara með tökuvélina inn í klefa í hálfleik," segir Trausti, en hann byrjaði að fylgjast með Guðjóni þegar undirbúningstímabil BÍ/Bolungarvíkur stóð sem hæst. Trausti vonast til að heimildarmyndin gefi skýra mynd af öllum ferli Guðjóns og hann langar til að kafa ofan í persónu þjálfarans. „Hann er náttúrulega mjög umdeild persóna og þjálfari. Þetta er því ekki bara heimildarmynd um knattspyrnuþjálfarann Guðjón Þórðarson heldur einnig um pabbann, eiginmanninn og manneskjuna sjálfa."Trausti Salvar Kristjánsson hyggst kafa ofan í persónuna Guðjón Þórðarson, sem hefur verið stöðugt á milli tannanna á Íslendingum.Guðjón er eflaust einn þekktasti knattspyrnuþjálfari landsins; hann gerði lið KA og ÍA að Íslandsmeisturum og KR að bikarmeisturum. Hann var einnig farsæll sem landsliðsþjálfari og reyndi fyrir sér á enskri grund, meðal annars hjá Stoke og Barnsley, áður en hann sneri aftur heim. Guðjón sagðist sjálfur lítil deili vita á þessu verkefni í samtali við Fréttablaðið. „Þetta er blint stefnumót við framtíðina," segir Guðjón og bætir því við að ekki sé búið að skrifa neitt handrit.- fgg dddd
Mest lesið Fékk besta nafnið frá frú Vigdísi Innlent Sakborningur í pottamálinu grunaður um tilraun til manndráps Innlent Í eðli okkar að fylgjast með náunganum Innlent Vildu að Navalní yrði hluti af fangaskiptunum sögulegu Erlent Sérsveitin skarst í leikinn þegar unglingar slógust í Mjódd Innlent Hvalfjarðargöngin opnuð á ný Innlent Grunuð um að flytja fíkniefni til landsins með tólf ára son í för Innlent Lést af völdum sprengju sem var falin fyrir tveimur mánuðum Erlent Sex sérsveitarmenn í Eyjum og lagt hald á tvo hnífa Innlent Strandavegur í sundur og ferðamaður festi sig í flýti Innlent Fleiri fréttir „Ótrúlegt“ að Halla hafi ekki verið fyrsta frétt RÚV Enginn skömm í að verða fyrir netsvikum Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Sex sérsveitarmenn í Eyjum og lagt hald á tvo hnífa Meiri umferð um Vesturlandsveg en Suðurlandsveg Hundrað ár í dag frá fyrsta flugi til Íslands Grunuð um að flytja fíkniefni til landsins með tólf ára son í för Það séu vonbrigði ef fyrirtæki hækki verð úr hófi Kveikur frá Stangarlæk fallinn Hvalfjarðargöngin opnuð á ný Strandavegur í sundur og ferðamaður festi sig í flýti Auknar líkur á að eldgos hefjist á næstu dögum Allir ættu að komast leiðar sinnar þrátt fyrir viðvörun Telur stöðu heimsmála hafa áhrif á fylgið Aukin skjálftavirkni, óviðunandi fylgi og óveður í Eyjum Sakborningur í pottamálinu grunaður um tilraun til manndráps Sjálfstæðismenn taki „óviðunandi“ fylgi alvarlega Sérsveitin skarst í leikinn þegar unglingar slógust í Mjódd Auknar líkur á skriðuföllum um helgina Úrkoman í júlí sló met Fólk eigi að gera ráð fyrir innbrotum Í eðli okkar að fylgjast með náunganum Fékk besta nafnið frá frú Vigdísi Hópar slógust en enginn ætlar að kæra „Hér er um fullkomlega eðlileg viðskipti að ræða“ Hlý og góð tilfinning að mæta á Bessastaði Borinn niður af klettaborginni VG mælist með 3,5 prósent Furðar sig á kjötafurðarstöðvunum Frú forseti, klútaveisla og undrandi bændur Sjá meira