Innlent

Loka Byko-búð og segja upp 20

Versluninni í Kauptúni verður lokað í september. 
 Mynd/Vilhelm
Versluninni í Kauptúni verður lokað í september. Mynd/Vilhelm
Rúmlega tuttugu starfsmönnum Byko í Kauptúni í Garðabæ hefur verið sagt upp og versluninni verður lokað í september. Þá hefur Sigurður E. Ragnarsson, forstjóri fyrirtækisins, látið af störfum.

Í tilkynningu frá Byko kemur fram að fjölskyldan sem staðið hafi að baki rekstrinum frá byrjun ætli að taka alfarið við stjórnartaumunum. Guðmundur H. Jónsson, sonur Jóns Helga Guðmundssonar aðaleiganda, tekur við forstjórastarfinu. - þeb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×