Lífið

Borðuðu pylsur á frumsýningu Andra á flandri

Saman á flandri - Útvarpsmaðurinn Andri Freyr Viðarsson ásamt ferðafélaga sínum, hundinum Tómasi.
Saman á flandri - Útvarpsmaðurinn Andri Freyr Viðarsson ásamt ferðafélaga sínum, hundinum Tómasi. Fréttablaðið/hag
Fyrsti þáttur sjónvarpsþáttarins Andri á flandri var frumsýndur í Bíói Paradís í gær. Fjöldi góðra gesta sótti frumsýninguna og gæddi sér á einni "tvíhleypu" að henni lokinni.

Þátturinn hefur göngu sína á RÚV í kvöld og í þeim mun Andri Freyr Viðarsson ferðast um landið og heimsækja áhugaverða staði og fólk. Ferðafélagi Andra er bolabíturinn Tómas sem mun halda sjónvarpsmanninum félagsskap á meðan á flakkinu stendur. - sm






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.