Innlent

HR og skógræktarfólk vilja Öskjuhlíð í fóstur

Sigurður Einarsson arkitekt hefur gert tillögu fyrir höfuðstöðvar Skógræktarfélags Íslands í austanverðri Öskjuhlíð.
Sigurður Einarsson arkitekt hefur gert tillögu fyrir höfuðstöðvar Skógræktarfélags Íslands í austanverðri Öskjuhlíð. Mynd/Sigurður Einarsson - Batteríið
Öskjuhlíð gæti komist í forsjá Skógræktarfélags Íslands og Háskólans í Reykjavík ef borgaryfirvöld samþykkja tillögu þessara aðila. „Við undirritaðir erum sannfærðir um að Skógræktarfélag Íslands og Háskólinn í Reykjavík séu réttir aðilar til að halda utan um þá uppbyggingu sem þarf að eiga sér stað í Öskjuhlíðinni til að hún geti orðið sú útivistarperla sem hún sannarlega býður upp á,“ segja Ari Kristinn Jónsson, rektor skólans, og Magnús Gunnarsson, formaður Skógræktarfélagsins, í bréfi til Jóns Gnarr borgarstjóra.

Hugmyndin er sú að aðilarnir tveir, í nánu samstarfi við borgina, verði „fósturforeldrar“ Öskjuhlíðar. „Í því felst að SÍ og HR skuldbinda sig til að bera ábyrgð á svæðinu á komandi árum, stuðla að fegrun þess og uppbyggingu og laða að önnur fyrirtæki og stofnanir í nágrenni Öskjuhlíðar til að leggja sitt af mörkum til að vinna að uppbyggingu og fegrun svæðisins,“ segir í erindinu til borgarstjóra.

Ari og Magnús segja meðal annars mikla ónýtta möguleika varðandi göngustíga, íþróttir, fræðslu og ferðamennsku í Öskjuhlíð. Staðurinn gæti gegnt lykilhlutverki sem útivistarsvæði. Skipuleggja þurfi skógræktina mun betur. „Þarna þarf að grisja og gróðursetja með fjölbreytni í huga, til dæmis blómstrandi rósir og berjarunna,“ segja þeir í bréfi sínu.

Málið er nú á leið til skoðunar í skipulagsráði borgarinnar. Auk þess sem aðilarnir vilja fóstra Öskjuhlíðina óskar Skógræktarfélag Íslands eftir lóð fyrir nýjar höfuðstöðvar á svæðinu. Félagið segir húsinu ætlað að vera „hjarta“ skógræktaráhugamanna á Íslandi. Húsið verði lágreist og sem næst Perlunni til að raska svæðinu sem minnst.

„Skógræktarfélag Íslands mun líta á sitt nýja heimili sem „póst“ á ferð útivistarfólks um stígakerfi Öskjuhlíðarinnar, þar sem það getur staldrað við, slappað af eða leikið sér samhliða því að fræðast um skógrækt og Öskjuhlíðina. Með veru sinni í Öskjuhlíðinni vill félagið gjarnan koma að skipulagi og framkvæmd við grisjun og plöntun ríkari flóru á svæðinu,“ segir í lóðarumsókn skógarmanna.

gar@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×