Innlent

Fatlaðir ætla yfir Vatnajökul

Sean Rose er reyndur íþróttamaður.
Sean Rose er reyndur íþróttamaður.
Hópur erlendra ofurhuga ætlar að freista þess að fara í snjódrekaflug þvert yfir Vatnajökul í apríl á næsta ári. Þetta væri ekki í frásögur færandi ef þrír í hópnum væru ekki bundnir við hjólastól.

„Þetta er auðvitað alveg ótrúleg áskorun, klárlega ein sú erfiðasta sem fatlaðir íþróttamenn hafa tekið sér fyrir hendur,“ segir hinn breski Sean Rose, sem stýrir leiðangrinum.

Rose og félagar eru flestir reyndir fjallagarpar en hafa þó aldrei tekist á við neitt í líkingu við fyrirætlaða för.

- rve




Fleiri fréttir

Sjá meira


×