Eigendum verði gert að sækja námskeið 6. ágúst 2011 06:00 Hundar með varðhundaeðli hafa gefist vel í höndum þeirra sem hafa vilja, getu og þekkingu til þess að fara með þá.
Innflutningsbann á hunda af varðhundategundum leysir engan vanda. Þetta segir Halldór Runólfsson yfirdýralæknir, sem vill miklu fremur sjá að eigendum og kaupendum slíkra hunda verði gert skylt að sækja þar til gert námskeið með þá, ella fái þeir ekki leyfi til að halda þá. Fréttablaðið greindi frá því í gær að Rottweiler-hundur hefði bitið tólf ára stúlku fyrr í vikunni og hefði þurft að sauma sárið saman með sextán sporum. Hundinum hefur verið lógað. Framkvæmdastjóri Hundaræktarfélags Íslands, Valgerður Júlíusdóttir, velti þeirri hugmynd upp vegna atviksins hvort banna ætti tilteknar tegundir með varðhundaeðli hér. „Það er orðið svo mikið af þessum hundum hér á landi að innflutningsbann er ekki svarið," segir yfirdýralæknir. „Þetta snýst fremur um að skilgreina og skylda þá sem mega halda dýr með varðhundaeðli til að sækja þar til gerð námskeið. Eigendur þeirra þurfa að hafa þekkingu, vilja og getu til að hafa stjórn á þeim og hugsa vel um þá. Hinum sem sneyddir eru þeirri ábyrgðarkennd sem til þarf yrðu þar með settar ákveðnar skorður með ákveðnum útfærslum." Yfirdýralæknir segir sveitarfélögin geta sett sér samþykktir um að tilteknar hundategundir verði ekki leyfðar nema að því undangengnu að eigendur og kaupendur séu búnir að sækja námskeið hjá þar til bærum þjálfurum. Sveitarfélögin hefðu þá forgöngu um það í samvinnu við heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna sem. Matvælastofnun gæti á hinn bóginn sett það skilyrði, þegar sótt væri um innflutning á þessum hundategundum, að leyfi fengist ekki nema innflytjandinn hefði sótt námskeið um meðferð þeirra. Halldór kveðst gera skýran greinarmmun á svokölluðum árásarhundum og hundum með varðhundaeðli. Fyrrnefndu tegundirnar sé bannaðar hér á landi en síðarnefndu tegundirnar hafi gefist vel í höndum réttra eigenda. Hann segir enn fremur að í ljósi nýlegra atvika þar sem hundar hafi bitið fólk þurfi Matvælastofnun í samvinnu við sveitarfélög og heilbrigðiseftirlit að koma hundahaldi í fastari farveg með hertum reglum og hafi það þegar verið rætt. Hann kveðst munu hafa forgöngu um framhald þess máls. jss@frettabladid.is
Mest lesið Maður hætt kominn eftir ísbjarnarárás Innlent Bugaðar á bak við eldavélina að baka fyrir TikTok Innlent Um þúsund bréfberar misst fingur eða framan af fingri á fimm árum Erlent Nýútskrifuð kona ráðin í stað reynslumikils karls Innlent Illvænlegar vendingar á veðurspánni fyrir helgina Veður Úkraínumenn aðstoða uppreisnarmenn í Malí gegn Wagner-liðum Erlent „Fólkið verður hreinlega að rísa upp“ Innlent Mælir gegn notkun á teflonvörum Innlent Þolinmæði Færeyinga gagnvart Norðurlandaráði á þrotum Erlent Helgi segir lítinn sóma að framgöngu ríkissaksóknara Innlent Fleiri fréttir Háttsemi Helga nái aftur til 2017 Sagði móður ekki heila á geði og fær skömm í hattinn Nýútskrifuð kona ráðin í stað reynslumikils karls Ekki sammála því að atvinnulífið hafi brugðist Helgi segir lítinn sóma að framgöngu ríkissaksóknara Gæti gosið á næstu dögum Samtök atvinnulífsins blása á gagnrýni formanns VR Segir Helga ekki hafa bætt ráð sitt Maður hætt kominn eftir ísbjarnarárás Bilið aldrei meira milli karla og kvenna Lúxussnekkja Ratcliffe í Reykjavíkurhöfn Bugaðar á bak við eldavélina að baka fyrir TikTok Almennir borgara eltu uppi þjófa í tveimur aðskildum málum Hlaupið marki líklega upphaf á aukinni virkni í Kötlu Skorar á Guðrúnu að fallast ekki á lausn Helga frá störfum „Fólkið verður hreinlega að rísa upp“ Glæsileg 64 ára gömul rúta vekur mikla athygli Þyrlusveitin sinnti óvanalegu útkalli á Helgafelli Fólk byrjað að fá forsetaafslátt Mælir gegn notkun á teflonvörum Taumlaus græðgi, hlaup og umdeild bílakaup „Ekkert forsetabíla-hókuspókusprútt hér alla daga“ Frétti á eftir samstarfsfólki að ekki væri óskað eftir vinnuframlagi Einn slasaður í mótorhjólaslysi við Látrabjarg Íslenskir þjóðbúningar vekja lukku á Ólafsvöku Mohamad vill flytja af landi brott Enn mikið vatn í ám þótt dregið hafi úr rigningu Eigandi Brimborgar gefur upp viðskiptakjörin Einn besti dagur sumarsins í Reykjavík um helgina Rannsaka þátt rútubílstjóra sem fylgdist með hraðanum í síma Sjá meira