Innlent

Norðurskautsríkin ræddu málefni norðurslóða í ísbrjóti

Fundað á ísbrjóti Rússneski ísbrjóturinn Yamal var viðeigandi samkomustaður norðurskautsríkjanna, enda eru auknar siglingar um norðausturleiðina eitt af helstu hagsmunamálum ríkjanna átta. Mynd/Murmansk Shipping Company
Fundað á ísbrjóti Rússneski ísbrjóturinn Yamal var viðeigandi samkomustaður norðurskautsríkjanna, enda eru auknar siglingar um norðausturleiðina eitt af helstu hagsmunamálum ríkjanna átta. Mynd/Murmansk Shipping Company
Þrír fulltrúar frá Íslandi sóttu ráðstefnu Norðurskautsráðsins sem var haldin á ísbrjótnum Yamal norður af Rússlandsströndum í vikunni og lauk í fyrradag.

Skipið sigldi hina svokölluðu norðausturleið milli Atlantshafs og Kyrrahafs, en auknar skipasiglingar þá leið voru einmitt eitt umfjöllunarefna á ráðstefnunni.

Einar Gunnarsson, ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu, og Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, sóttu ráðstefnuna ásamt fulltrúa Íslands í nefnd embættismanna Norðurskautsráðsins.

Öll aðildarríkin átta sendu fulltrúa sína á ráðstefnuna og samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu var þar fjallað um öryggi og samvinnu á norðurslóðum, umhverfismál, þjóðréttarleg efni varðandi norðurskautið og ekki síst leit og björgun á norðurslóðum.

Hið síðastnefnda er eitt lykilmála Íslands í þessum efnum. Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra viðraði einmitt á fundi með starfssystur sinni Hillary Clinton í vor, hugmyndir um alþjóðlega leitar- og björgunarstöð á Íslandi.

Við lok ráðstefnunnar fylgdust þátttakendur einmitt með almannavarnaæfingu undan ströndum Jakútíu.

Meðal þess sem fram kom á ráðstefnunni, sem Rússar stóðu fyrir, var að siglingar um norðausturleiðina milli Evrópu og Asíu eru þegar hafnar að nokkru leyti.

Sú leið er umtalsvert styttri og fljótfarnari en hefðbundnar leiðir suður fyrir Indland og um Súez-skurðinn og Miðjarðarhaf. Ástæðan fyrir þessari aukningu er að hafís á svæðinu hefur hopað verulega og er viðbúið að sú þróun haldi áfram.

Rússar sögðust jafnframt telja að ferðum myndi fjölga verulega á komandi árum.

Verði svo, segir í svari frá ráðuneytinu, er viðbúið að siglingunum muni fylgja margs konar áskoranir sem kalli á öflugt alþjóðlegt samstarf.

Ísland á ríkra hagsmuna að gæta í þessum málaflokkum, enda hefur verið rætt um að stóraukin umferð um hafsvæðið í kringum landið kallaði meðal annars á samstarf um olíumengunarvarnir.

Þá fór Össur þess á leit við Hillary Clinton utanríkisráðherra Bandaríkjanna í vor að Bandaríkin og Ísland myndu efla samstarf á rannsóknum á norðurslóðum.

Einnig hafa verið uppi hugmyndir um alþjóðlega vöruflutningamiðstöð á Austfjörðum, sem gæti verið umskipunarhöfn fyrir vörur frá Asíu til Evrópu og Norður-Ameríku.thorgils@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×