Innlent

Einn af virtari viðburðum PGA-mótaraðarinnar

Sedgefield völlurinn var endurgerður í upprunalegri mynd fyrir nokkrum árum. Klúbbhúsið er eitt það glæsilegasta í Bandaríkjunum.
Sedgefield völlurinn var endurgerður í upprunalegri mynd fyrir nokkrum árum. Klúbbhúsið er eitt það glæsilegasta í Bandaríkjunum. mynd/Anthony Vinson Smith
Sedgefield golfklúbburinn geymir mikla sögu enda gestgjafi eins grónasta viðburðar á PGA-mótaröðinni frá stofnun hennar, eða Wyndham Championship. Stofnað var upphaflega til mótsins árið 1938 undir heitinu Greater Greensboro Open, og var Sedgefield klúbburinn gestgjafinn í yfir fjóra áratugi samfleytt. Sagan geymir meistara eins og Sam Snead, Gary Player, Byron Nelson og Ben Hogan, svo fáeinir af frægari kylfingum fortíðarinnar séu nefndir.

Árið 2008 var mótið haldið að nýju á Sedgefield eftir gagngerar endurbætur á vellinum þar sem upphafleg hönnun vallarins var höfð í hávegum. Endurbæturnar kostuðu nokkur hundruð milljónir króna. Það ár setti Carl Pettersson met þegar hann lék völlinn á níu undir pari eða 61 höggi. Völlurinn hefur aldrei verið leikinn á jafn lágu skori frá upphafi. Pettersson vann mótið en meistari síðasta árs var Indverjinn Arjun Atwal, sem reyndar komst inn á mótið vegna forfalla.

Goðsögnin Sam Snead varð fyrstur til að sigra á Wyndham Championship árið 1939. Hann vann síðar mótið sjö sinnum til viðbótar, oftast allra. Átta sigrar hans á mótinu er met sem stendur enn sem flestir sigrar á einum viðburði á mótaröðinni.

Sex kylfingar hafa unnið Wyndham mótið og eitt af fjórum stórmótum ársins sama ár. Þeirra frægastir eru Sandy Lyle árið 1988. Sam Snead árin 1946 og 1949 og Byron Nelson árið 1945.

Þessir kylfingar verða meðal annarra þekktra kylfinga með á mótinu: Trevor Immelman, Ian Poulter, Angel Cabrera, Paul Casey, Anthony Kim, Webb Simpson, Vijay Singh, Justin Leonard, Brandt Snedeker, Ben Curtis, John Daly, Davies Love III, Henrik Stenson, David Duval, Ernie Els, Jim Furyk, David Toms, Lucas Glover, Rocco Mediate, Camilo Villegas, Retief Goosen, Boo Weekley og Bill Haas.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×