Innlent

Bílaumferðin eykst óvænt

Umferð til og frá höfuðborgarsvæðinu um síðustu helgi var mun meiri en á sama tíma í fyrra.
Umferð til og frá höfuðborgarsvæðinu um síðustu helgi var mun meiri en á sama tíma í fyrra.
Umferð frá höfuðborgarsvæðinu um hringveginn jókst um tólf prósent um síðustu helgi, miðað við sama tíma í fyrra. Þetta er metaukning milli ára, að því er fram kemur á vef Vegagerðarinnar.

Þar segir jafnframt að samdráttur hafi verið flestar helgar í sumar utan tveggja helga þegar aukning mældist fjögur prósent milli ára.

Í sumar hefur helgarumferð frá höfuðborgarsvæðinu dregist saman um 4,6 prósent. Lengi stefndi í sex prósenta samdrátt, en þessi óvænta aukning sum síðustu helgi breytti því.

- þj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×