Lífið

Gott kynlíf lykillinn að góðu hjónabandi

Hamingjusamur Jeff Bridges hefur verið hamingjusamlega giftur Susan Geston í þrjátíu og fjögur ár.
nordicphotos/getty
Hamingjusamur Jeff Bridges hefur verið hamingjusamlega giftur Susan Geston í þrjátíu og fjögur ár. nordicphotos/getty
Stórleikarinn Jeff Bridges hefur verið kvæntur konu sinni, Susan Geston, frá árinu 1977 og eiga þau hjónin saman þrjár dætur. Í nýlegu viðtali sagði Bridges að lykillinn að farsælu hjónabandi væri ást og nóg af kynlífi.

„Maður verður fyrst og fremst að vera ástfanginn. Vinátta er einnig mikilvæg og fólk verður í alvöru að líta á maka sinn sem sinn betri helming og notfæra sér það. Svo þarf maður að geta deilt tilfinningum sínum með makanum en líka að gefa hvort öðru rými til að anda,“ sagði leikarinn geðugi.

„Og annað gott ráð, fullt, fullt af góðu kynlífi,“ sagði hann að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.