Tíska og hönnun

Alexa í fatabransann

Alexa Chung verður andlit Vero Moda í vetur.
Alexa Chung verður andlit Vero Moda í vetur. Nordicphotos/getty
Breska sjónvarpsstjarnan og tískufyrirmyndin Alexa Chung verður andlit næstu línu frá verslanakeðjunni Vero Moda. Það þykir mikill fengur fyrir fyrirtækið að fá hina ungu Chung í sínar raðir því hún þykir með eindæmum smart og mikil fyrirmynd í tískuheiminum.

Í yfirlýsingu frá fyrirtækinu segir: „Chung er öllum tískumeðvituðum konum innblástur."

Fatnaðurinn kemur í búðir með haustinu en þau frægu nöfn sem áður hafa ljáð fyrirtækinu andlit sitt eru Kate Moss og Gisele Bündchen.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.