Lífið

Lærir tískuljósmyndun í London

Íris Björk Reynisdóttir.
Íris Björk Reynisdóttir. Fréttablaðið/VALLI
Ljósmyndun hefur átt hug Írisar Bjarkar Reynisdóttur undanfarin fjögur ár. Hún flytur búferlum til London á laugardaginn og hefur nám í ljósmyndun og stíliseringu við London College of Fashion.

Ljósmyndaáhuginn kviknaði þegar Íris var skiptinemi í Brasilíu. Þá greip hana mikil löngun til þess að taka myndir enda margt nýtt og framandi sem bar fyrir augu.

„Ég keypti mér almennilega myndavél hálfu ári eftir heimkomu. Á sama tíma hóf ég að vinna fyrir ljósmyndanefnd Verzlunarskóla Íslands og tók myndir fyrir nemendafélag skólans í tvö ár."

Eftir útskrift vorið 2010 hefur hún verið iðin við ljósmyndun, samhliða því að kenna í Danslistarskóla JSB og læra förðun. Hún kveðst hafa lagt stund á förðun til að auka möguleika sína á inngöngu í skólann. Á sama tíma neitar hún því ekki að gott sé að hafa förðunarnámið í farteskinu sem ljósmyndari.

Íris segist vera að þróa með sér sinn eigin stíl og að hún reyni alltaf að prófa eitthvað nýtt með hverri myndatöku.

„Mig langar að starfa á sviði tísku og valdi skólann af þeim sökum. Hann býður upp á nám til BA-gráðu í tískuljósmyndun, ólíkt mörgum skólum sem bjóða einungis upp á meistaragráðu í faginu."

Námsbraut Írisar er blanda af ljósmyndun og stíliseringu. Fyrsta árið leggur hún stund á bæði fögin en eftir það hyggst hún sérhæfa sig í ljósmyndun. „Ég hef ekki beint reynslu af stíliseringu en hef skýra skoðun á því sem ég vil gera í myndatökum," segir Íris sem var einmitt á leið að mynda og stílisera myndatöku fyrir nýja línu Oroblu-sokkabuxnanna.

„Ég hef ekki alltaf haft áhuga á tísku. Hann kviknaði fyrir nokkrum árum og hefur vaxið samhliða ljósmyndaáhuganum. Ég get ekki sagt að ég hafi verið svalasti krakkinn í grunnskóla."

Íris heldur úti vefsíðunni iris-bjork.blogspot.com og má fylgjast með ævintýrum hennar þar.

hallfridur@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×