Lífið

Dregur sig út úr Django

hættur við Kevin Costner er hættur við að leika í Django Unchained.
nordicphotos/Getty
hættur við Kevin Costner er hættur við að leika í Django Unchained. nordicphotos/Getty
Kevin Costner hefur hætt við að leika í vestra Quentins Tarantino, Django Unchained. Talið var að leikarinn hefði samþykkt að vera í aukahlutverki sem illlmennið Ace Woody en ekkert verður af því.

Tímasetningin þótti ekki henta, líklega vegna leiks hans í nýrri Superman-mynd leikstjórans Zacks Snyder. Þetta kemur á óvart því Tarantino er þekktur fyrir að endurvekja feril leikara sem mega muna sinn fífil fegri.

Danny McBride úr sjónvarpsþáttunum Eastbound & Down hefur verið orðaður við hlutverkið.

Þeir leikarar sem hafa þegar samþykkt að leika í Django Unchained eru Leonardo DiCaprio, Samuel L. Jackson, Jamie Foxx og Christoph Waltz.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.