Lífið

Ásakar Blake ekki

amy winehouse
Talið er að söngkonan hafi látist eftir að hafa notað lyfið Librium í óhófi.
amy winehouse Talið er að söngkonan hafi látist eftir að hafa notað lyfið Librium í óhófi.
Mitch Winehouse, faðir söngkonunnar sálugu Amy, kennir Blake Fielder-Civil, fyrrverandi eiginmanni hennar, ekki um dauða hennar.

Mitch hefur kennt honum um að hafa látið hana ánetjast eiturlyfjum en segir hann ekki ábyrgan fyrir dauða hennar. „Ég kenni honum um ýmislegt. Hann kynnti hana fyrir hættulegum eiturlyfjum en dauði hennar var hræðilegt slys þar sem hún bar ábyrgðina,“ sagði hann við The Sun.

„Henni var sagt að ef hún færi í afeitrun án aðstoðar lækna gæti þetta gerst,“ sagði hann. Talið er að Amy hafi dáið eftir að hafa fengið flog af völdum lyfsins Librium sem á að auðvelda fólki að hætta að drekka.

Lagið Body and Soul sem Amy söng með reynsluboltanum Tony Bennett var frumflutt á afmælisdegi söngkonunnar á miðvikudag. Þá hefði hún orðið 28 ára.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.