Straumurinn liggur í MP banka 29. september 2011 11:00 Sigríður Einarsdóttir, útibússtjóri MP banka í Ármúla, segir MP banka vera lítið og persónulegt fyrirtæki en bjóði alla þjónustu sem fólk á að venjast. Mynd/Valli
Að sögn Sigríðar þjónustuverið allt annað yfirbragð en fólk þekkir frá sambærilegum fyrirtækjum. Við eigum því láni að fagna að viðskiptavinir okkar eru ánægðir með þjónustuna og segja öðrum frá því. Þannig koma flestir til okkar af því að vinir þeirra, samstarfsfólk eða fjölskyldumeðlimir hafa góða reynslu af viðskiptum við okkur," segir Sigríður Einarsdóttir, útibússtjóri MP banka í Ármúla. Að hennar sögn hefur frá upphafi verið kappkostað að veita úrvalsþjónustu í síma hjá MP banka og hefur þjónustuverið allt annað yfirbragð en fólk þekkir frá sambærilegum fyrirtækjum. „Í ljósi þess að fæstir koma í útibú þá er augljóst að símaþjónustan og netbankinn okkar skipta flesta miklu máli. Við setjum okkur því metnaðarfull markmið í að svara hratt og vel erindum viðskiptavina á tölvupósti eða síma," bendir Sigríður á. Hún segir MP banka vera lítið og persónulegt fyrirtæki en bjóði alla bankaþjónustu sem fólk á að venjast. „Hvort sem það eru debetkort, kreditkort, greiðsluþjónusta og hefðbundinn yfirdráttur fyrir daglegar þarfir eða lánafyrirgreiðsla vegna stærri ákvarðana eins og íbúðalán vegna kaupa á fasteign, lán vegna viðhalds á fasteign eða kaupa á sumarhúsi. Þess má geta að við bjóðum bæði verðtryggð og óverðtryggð íbúðalán og höfum talsverða sérstöðu á markaðnum þar sem við setjum ekki viðskiptaskilyrði þegar viðskiptavinir taka slík lán. Jafnframt bjóðum við ein þann kost að taka hluta íbúðaláns óverðtryggt og hluta verðtryggt sem getur verið skynsamlegur kostur fyrir marga," segir Sigríður. „Ég má líka til með að nefna það að hjá okkur eru innlánsvextir á launareikningum 1,7 prósent á meðan algengir innlánsvextir á launareikningum eru allt niður í 0,1 prósent. Okkar viðskiptavinir þurfa því ekki að hafa áhyggjur af því að peningar á launareikningi séu á slökum kjörum." En bankinn býður einnig óverðtryggða sparnaðarreikninga sem bundnir eru í 1, 3, 6, 12 eða 18 mánuði gegn góðum vaxtakjörum. Hún getur þess að starfsfólk bankans taki eftir því að fólk telji stundum mikið umstang fylgja því að færa sig til bankans. „En svo kemur flestum á óvart hversu snurðulaust þetta gengur fyrir sig, enda sjáum við um að ganga frá þessu fyrir fólk hjá gamla bankanum og látum vita hvenær má sækja ný kort. Við erum orðin þaulvön í þessu," segir Sigríður brosandi.Fjórar leiðir í boðiHjá MP banka eru í boði fjórar leiðir í ávöxtun séreignarsparnaðar. Ávöxtunarleið 1 fjárfestir eingöngu í ríkistryggðum skuldabréfum. Ávöxtunarleið 2 fjárfestir til helminga í ríkistryggðum skuldabréfum og innlánum. Ávöxtunarleið 3 fjárfestir eingöngu í innlánum, bæði verðtryggðum og óverðtryggðum. Ávöxtunarleið 4 er verðtryggður lífeyrisreikningur.Einstök staðaStaða MP banka er einstök sem eini bankinn sem er að fullu í eigu lífeyrissjóða, fyrirtækja og einstaklinga og hefur enga aðstoð þegið frá yfirvöldum. Þann 11. apríl 2011 lögðu yfir 40 innlendir og erlendir fjárfestar MP banka til 5,5 milljarða í nýtt hlutafé og ný stjórn tók við. Stjórnarformaður er Þorsteinn Pálsson og forstjóri er Sigurður Atli Jónsson. Fjöldi starfsmanna er 82. Auk almennrar bankaþjónustu fyrir fólk og fyrirtæki býður MP banki einnig heildarlausnir í eignastýringu fyrir einstaklinga og fjárfesta með mismunandi áherslur. MP banki starfrækir tvö útibú ásamt netbanka og þjónustuveri; annað í Borgartúni 26 og hitt í höfuðstöðvum bankans í Ármúla 13a.
Sérblöð Mest lesið Flytur fyrirtækin vegna löggjafar um trans börn Viðskipti erlent „Það er verið að ríkisvæða húsnæðismarkaðinn“ Viðskipti innlent Leggja upp laupana í Lundúnum Viðskipti innlent Umferðarofsi stofnar vegfarendum í hættu Samstarf Níu holu golfvöllur á gamalli landnámsjörð Samstarf Fasteignakaup fjárfesta vísbending um að fasteignaverð haldi áfram að hækka Viðskipti innlent Dýr smjörvi á Egilsstöðum vekur mikla athygli Neytendur Ævintýralegt líf: Fjárfestirinn bankaði á gluggann á garðkofanum þar sem hann bjó Atvinnulíf Ólöglegt bleikiefni í hveitinu Neytendur Annað tilboð borist í Skagann 3X Viðskipti innlent Fleiri fréttir Umferðarofsi stofnar vegfarendum í hættu Greiðsluáskorun Níu holu golfvöllur á gamalli landnámsjörð Ný og nútímaleg sveit í borg Engin málamiðlun þegar kemur að krafti Polestar 4 Hliðarbil ökutækja frá hjólreiðafólki 1.5 metrar 18 holu vatna- og skógavöllur með töfrandi fjallasýn Einn glæsilegasti golfvöllur landsins í Kiðjabergi Stærsti Hiab krani í heimi á sumarsýningu Veltis Áhersla á öryggi viðskiptavina Eftirvagnar breyta aksturseigileikum bílsins Tæknin tekur yfir leigubílamarkaðinn Hægt að tilkynna holur á vegum á vegbót.is – FÍB er alltaf á vaktinni Brimborg lækkar verð á rafbílnum Volvo EX30 Nýr Peugeot E-3008 rafbíll frumsýndur í Brimborg Bílaumboðið Una skrifar undir samning við XPENG Skelltu þér í sólina í sumar Nýjungar á Hótel Grímsborgum Ánægðari börn, foreldrar og starfsfólk og öflugt fagstarf Brimborg lækkar verð á Polestar Iðnaðarmaður ársins 2024 er fundinn Ofursmart heilsárshús Glæsilegar íbúðir með frábæru útsýni Ný leið fyrir fyrirtæki til að rafvæða bílaflotann Toyota fagnar sumrinu á laugardag Þú þarft ekki að óttast rigninguna Eitt glæsilegasta byggingarsvæði höfuðborgarsvæðisins Sjá meira