Lífið

Lindsay Lohan flettir sig klæðum

Neyðin kennir…Leikkonan Lindsay Lohan ætlar að sitja í fyrsta sinn fyrir allsnakin í tímaritinu Playboy. 
nordicphotos/Getty
Neyðin kennir…Leikkonan Lindsay Lohan ætlar að sitja í fyrsta sinn fyrir allsnakin í tímaritinu Playboy. nordicphotos/Getty
Vandræðagemlingurinn Lindsay Lohan deyr ekki ráðalaus en nýjustu fregnir herma að hún hafi tekið tilboði Hughs Hefner um að fletta sig klæðum fyrir Playboy.

Samkvæmt vefsíðunni tmz.com hljóðar tilboðið upp á rúmar 115 milljónir íslenskra króna og er þegar búið að taka hluta af myndunum. Lohan hefur ekki átt sjö dagana sæla undanfarið heldur verið inn og út úr meðferðum og fangelsum. Í vikunni sást til hennar á líkhúsi í Los Angeles þar sem hún sinnir samfélagsþjónustu til að bæta fyrir brot sín en Lohan hefur margoft verið tekin með eiturlyf í fórum sínum og fyrir að keyra undir áhrifum.

Fjölmiðlar vestanhafs telja að nektarmyndatakan í Playboy sé liður í að lappa upp á feril Lohan en einnig að leikkonan sé peningaþurfi enda ekki unnið neitt að ráði í mörg ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.