Sykur þróar stílinn á nýrri plötu 27. október 2011 07:30 Söngkonan Agnes Björt hefur gengið til liðs við Sykur. "
Það var margt sem bjátaði á við gerð plötunnar," segir Halldór Eldjárn úr hljómsveitinni Sykri. Sykur hefur sent frá sér plötuna Mesópótamía, sem fylgir eftir frumburði sveitarinnar, Frábært eða frábært, sem kom út árið 2009. Plata númer tvö, var hún erfið? "Við tókum okkur allavega tíma í þetta. Það voru tímabil þar sem við þurftum að spila mikið og þá fór allt forgörðum. Útkoman var allt öðruvísi en við lögðum upp með í byrjun vegna þess að við vorum að læra svo mikið og þróa stílinn í leiðinni." Var freistandi að fá Erp í annað lag og endurtaka Viltu dick-ævintýrið? "Hvenær hefur það virkað? Erpstímabilið var mjög fínt, það er gaman að vinna með honum. En við myndum ekki gera þetta aftur. Þá væri alveg eins hægt að setja okkur í Góða hirðinn, en við viljum stöðugt vera að finna upp á einhverju nýju." Söngkonan Agnes Björt Andradóttir hefur gengið til liðs við Sykur. "Ég uppgvötaði hana fyrir þremur árum. Fattaði að hún býr við hliðina á mér, þannig að það er stutt fyrir hana á æfingar," segir Halldór. "Hún kemur inn í þetta verkefni á eigin forsendum og býr til glænýjan hljóm með okkur." Sykur fagnar útgáfu plötunnar á Faktorý í kvöld. Hlýtt verður á plötuna í heild og að því loknu verður samfélagslegt gildi hennar rætt.
Harmageddon Tónlist Mest lesið Drekkur frekar bensín en að hlusta á viðtal við Arctic Monkeys Harmageddon Metallica ætlar að selja riff á Ebay Harmageddon Hljómsveitt frumsýnir Næs í rassinn Harmageddon Íslendingurinn sem er að slá í gegn í Dexter Harmageddon Ísland í röngu tímabelti Harmageddon Bangsahommahátíð í Reykjavík Harmageddon Kostulegt samtal Frosta við Nígeríusvindlara sem lofar honum milljónum króna Harmageddon Sannleikurinn: Ráðherrar fá sérþjálfaða öryggisverði Harmageddon Það þarf fólk eins og Má Harmageddon Gabríel með stjörnuhröp Harmageddon