Sálmur 89 - Sjá morgunstjarnan blikar blíð 1. nóvember 2011 00:01
Sjá, morgunstjarnan blikar blíð, sem boðar náð og frelsi lýð og sannleiks birtu breiðir. Þú blessun heims og harmabót, þú heilög grein af Jesse rót, mig huggar, lífgar, leiðir. Jesús, Jesús, líknin manna, lífið sanna, ljósið bjarta, þér ég fagna, hnoss míns hjarta. Þú dásöm perla, dýr og skær, þú djásnið mannkyns, Jesús kær, þú eilíf alheims gleði, þú himinlilja' í heiminum, þitt heilagt evangelíum er svölun særðu geði. Herra, Herra, himneskt manna, hósíanna! Hátign þinni vegsemd, dýrð og lof ei linni.
Jólahald Jólatónlist Mest lesið Jólalestin ekur um borgina í tuttugasta sinn Jól Skreytum hús Jól Kóramót í miðborginni í kvöld Jól Kjúklingur með ljúfu jólabragði Jól Einn svartur kjóll – þrjú tilefni Jól