Lífið

Landaði flottu hlutverki í Rose-leikhúsinu í London

Flott hlutverk Guðmundur Ingi leikur ókunnuga manninn í Konunni við Hafið eftir Henrik Ibsen í uppfærslu Rose-leikhússins í Kingston. Aðalhlutverkin verða í höndunum á Joely Richardson og Malcolm Storry. Fréttablaðið/Vilhelm
Flott hlutverk Guðmundur Ingi leikur ókunnuga manninn í Konunni við Hafið eftir Henrik Ibsen í uppfærslu Rose-leikhússins í Kingston. Aðalhlutverkin verða í höndunum á Joely Richardson og Malcolm Storry. Fréttablaðið/Vilhelm
„Æfingar byrja í lok janúar. Þetta er virkilega spennandi,“ segir Guðmundur Ingi Þorvaldsson, leikari. Hann hefur hreppt hlutverk Ókunnuga mannsins í uppfærslu Rose-leikhússins í Kingston-hverfinu í London á verki Henrik Ibsen, Konan við hafið.

Mótleikkona Guðmundar í verkinu verður enska leikkonan Joely Richardson sem er dóttir Vanessu Redgrave og er því af miklu leikhúsfólki komin. Hún hefur meðal annars leikið í kvikmyndum á borð Patriot og sjónvarpsþáttaröðinni Nip/Tuck. Hún leikur jafnframt Anitu Vanger í ensku útgáfunni af Karlar sem hata konur. Verkinu er leikstýrt af Stephen Unwin. Það verður frumsýnt þann 23. febrúar en hitt aðalhlutverkið verður í höndunum á Malcolm Storry. Sá er ákaflega virtur í sínu fagi en hefur jafnframt brugðið fyrir í kvikmyndum á borð við The Last of the Mohicans.

Guðmundur segir Unwin vera einn virtasta leikhús-leikstjóra Breta og það séu því forréttindi að fá að vinna með honum. „Bretum er nefnilega alveg sama með hverjum þú hefur unnið heima á Íslandi, þeir vilja bara vita með hverjum þú hefur unnið hérna úti. Þetta er því mikilvægt skref fyrir mig,“ segir Guðmundur og bætir því við að umboðsmaðurinn hans í London sé himinlifandi með niðurstöðuna. „Hann getur núna loksins sent fólk á sýningu með mér og leyft því að sjá mig.“

Eins og Fréttablaðið greindi frá fyrir nokkru var Guðmundur boðaður í prufur fyrir sjónvarpsþættina Game of Thrones. Planið var þá að fara út í október en prufunum hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Verkefnið í Rose-leikhúsinu kom því eins og himnasending. „Ég er mjög ánægður með þetta.“

freyrgigja@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.