Lífið

Hámaði í sig mat

huggaði sig með mat Gary Barlow fitnaði mikið þegar sólóferillinn klikkaði.
huggaði sig með mat Gary Barlow fitnaði mikið þegar sólóferillinn klikkaði.
Gary Barlow, söngvari í strákabandinu Take That, segist hafa leitað sér huggunar í mat eftir að sólóferill hans fór illa af stað árið 1998. „Það er eitt að fyrirlíta sjálfan sig í huganum. En þegar þú horfir í spegilinn og fyrirlítur líkamann þinn líka, hvað gerirðu þá?“ sagði Barlow, sem var orðinn 105 kíló á þessum tíma.

„Það er þá betra að hata sjálfan sig og líta vel út eða líta hrikalega illa út en líða mjög vel. En að hata báðar hliðarnar fer alveg með mann,“ sagði Barlow, sem er fertugur. Hann er í fínu formi í dag en viðurkennir að matur verði alltaf óvinur hans. „Ég hef alltaf elskað mat og það hefur vakið hjá mér sektarkennd.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.