Lífið

Britney tók fjölskylduna upp á svið

Fjölskylduvæn Britney Spears endaði tónleikaferðalag sitt á að dansa með stórfjölskyldunni uppi á sviði. 
Nordicphotos/getty
Fjölskylduvæn Britney Spears endaði tónleikaferðalag sitt á að dansa með stórfjölskyldunni uppi á sviði. Nordicphotos/getty
Britney Spears lauk tónleikaferð sinni um heiminn með stæl í San Juan í Púertó Ríkó á dögunum. Í lokalaginu tók hún stórfjölskylduna sína upp á svið sem dillaði sér við tónlistina fyrir mörg þúsund áhorfendur.

Synir Spears eru fimm og sex ára og skemmtu sér vel með eyrnatappa í eyrunum með móður sinni á sviði. Einnig voru þar kærasti Spears, umboðsmaðurinn Jason Trawick, móðir hennar Lynne Irene, litla systirin Jamie Lynne og dóttir hennar Maddie á sviðinu og fögnuðu endalokum Femme Fatale-tónleikaferðalagsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.