Bíó og sjónvarp

Lausir við timburmennina

Freyr Gígja Gunnarsson skrifar
Málsóknaflóð Framleiðendur Hangover 2 hafa þurft að standa í þrennum málaferlum vegna myndarinnar. Þau mál hafa hins vegar verið leyst farsællega.
Málsóknaflóð Framleiðendur Hangover 2 hafa þurft að standa í þrennum málaferlum vegna myndarinnar. Þau mál hafa hins vegar verið leyst farsællega.
Framleiðendur Hangover 2 losnuðu í vikunni við tvær málsóknir sem höfðu verið í gangi. Handritshöfundurinn Michael Alan Rubin höfðaði mál á hendur höfundum myndarinnar fyrir að hafa stolið söguþræði myndarinnar úr sjálfsævisögu sinni, Mickey and Kirin. Rubin hætti sjálfviljugur við málsóknina.

Áhættuleikarinn Scott McLean, sem lék í áhættuatriði fyrir Ed Helms, er einnig hættur við að sækja framleiðendur myndarinnar til saka fyrir slys sem hann varð fyrir á tökustað. McLean fór fram á bætur vegna slyssins. Þar með hafa þrjú dómsmál verið til lykta leidd í tengslum við myndina.

Eins og frægt er orðið ákvað húðflúrameistarinn S. Victor Whitmil að fara í mál við aðstandendur myndarinnar vegna meints þjófnaðar á „höfundarverki“ sínu. Í myndinni skartar persóna Ed Helms ansi myndarlegu húðflúri í andlitinu sem var nákvæmlega eins og það sem Whitmil flúraði á andlit Mike Tyson. Húðflúrið fékk að standa óáreitt í myndinni en málsaðilar náðu sáttum þótt sú niðurstaða sé trúnaðarmál.

Hafa ber í huga að Hangover 2 var fjórða mest sótta mynd ársins og malaði gull í miðasölu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×