Innlent

Óbreytt ástand

Frá slysstað í fyrrakvöld
Frá slysstað í fyrrakvöld Mynd/símon örn
Karlmaður um tvítugt liggur enn alvarlega slasaður eftir að hann lenti í umferðarslysi á Geirsgötu í miðbæ Reykjavíkur í fyrrakvöld. Samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni á gjörgæslu er piltinum haldið sofandi í öndunarvél.

Ökumaðurinn missti stjórn á bílnum sem hafnaði á vegg gömlu Hafnarbúðarinnar og voru þrír fluttir á slysadeild. Tveir eru minna slasaðir.

Talið er að bifreiðinni hafi verið ekið töluvert yfir hámarkshraða, sem er 50 kílómetrar á klukkustund á þessum stað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×