Hljómsveitin Thin Jim notaði Skype við strengjaupptökur á sinni fyrstu plötu sem er væntanleg í mars. Ég er ekki viss um að þetta hafi verið gert áður, allavega ekki á Íslandi,“ segir Jökull Jörgensen úr kántrípoppsveitinni Thin Jim. Hún lauk upptökum á sinni fyrstu stóru plötu um síðustu helgi hjá Benzin-bræðrum í Sýrlandi.
Til að stjórna fjögurra manna strengjakvartett í upptökunum naut hljómsveitin aðstoðar Gísla Magnasonar í gegnum samskiptasíðuna Skype, en Gísli býr í Danmörku. „Ég samdi lagið en fékk mann til að útsetja strengi og það var allt skrifað á nótur. Svo er ég með kvartett í stúdíóinu og þá byrja menn að spyrja klassískra spurninga sem ég get ekki svarað. Þá dettur mér í hug að hringja til Danmerkur,“ segir Jökull. „Þau voru með hann [Gísla] beint fyrir framan sig þannig að þau gátu talað saman alveg án hindrana.“ Strengjaupptökurnar stóðu yfir í þrjár klukkustundir og gengu eins og í sögu.
Fjögurra laga plata Thin Jim sem kom út í fyrra fékk töluverða útvarpsspilun í N-Ameríku. Sveitin er skipuð hópi tónlistarmanna, þar á meðal söngvurunum Margréti Eir og Kristófer Jenssyni. Gestasöngvari á nýju plötunni var Harold Burr, fyrrum liðsmaður Platters, sem er búsettur hérlendis. „Hann hætti að syngja en ég gróf hann upp og dreif í stúdíó. Hann sló gjörsamlega í gegn,“ segir Jökull.
Platan er væntanleg í verslanir í mars, bæði hér heima og erlendis. Hinn nífaldi Grammy-verðlaunahafi Gary Paczosa sér um hljóðblöndun og Phil Magnotti, sem hefur starfað fyrir Whitney Houston, annast eftirvinnsluna.
freyr@frettabladid.is
Stjórnaði í gegnum Skype
