Innlent

Efast um réttmæti sorphirðugjalds

Júlíus Vífill Ingvarsson vill faglegt álit á málinu
Júlíus Vífill Ingvarsson vill faglegt álit á málinu Mynd úr safni / GVA
Skipulagsráð Reykjavíkurborgar hefur samþykkt að fá faglegt álit á því hvort heimilt er að krefja fólk um að færa ruslatunnur sínar fyrir losunardag ef þær eru almennt geymdar lengra en fimmtán metrum frá sorphirðubíl. Samkvæmt nýju fyrirkomulagi hjá borginni þarf fólk að greiða 4800 krónur í sorphirðugjald ef ruslatunnur eru lengra í burtu en þessu nemur.

Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, lagði til á fundi skipulagsráðs í gær að óskað yrði eftir því að fá faglegt álit byggingarfulltrúa og skipulagsstjóra á málinu. Ráðið gerði tillöguna að sinni og samþykkti.

Júlíus Vífill hefur miklar efasemdir um nýtt fyrirkomulag.  „Mér sýnist málið bara ekki svona einfalt. Í byggingarreglugerð og ýmsum deiliskipulagsáætlunum má víða finna skýrar reglur varðandi staðsetningu sorpíláta. Þar að auki er spurning um hver eigi að bera kostnað sem hlýst af slíkum tilfæringum. Tæplega er sanngjarnt gagnvart húseigendum að kveða á um staðsetningu sorpíláta í byggingarleyfi og koma svo fyrirvaralaust og rukka um aukagjald sem byggir á staðsetningu þessara sömu sorpíláta. Eðlilegt hefði verið að skipulagsráð hefði fjallað um málið áður en það var afgreitt og það fengi vandaðri meðferð," segir Júlíus Vífill.

Í samþykkt skipulagsráðs segir meðal annars:

„Mál þetta var ekki verið lagt fyrir skipulagsráð til umsagnar sem þó hefði verið eðlileg málsmeðferð.

Samþykktar byggingarnefndarteikningar og lóðaruppdrættir kveða jafnan á um endanlega staðsetningu og gerð sorpgerða og sorpgeymsla í samræmi við byggingarreglugerð og/eða deiliskipulag enda getur staðsetning sorpíláta verið ákveðin í deiliskipulagi.

Þar sem Reykjavíkurborg hefur með áðurnefndu bréfi opnað á flutning og nýja staðsetningu sorpgerða/-geymsla án fyrirvara eða frekari leiðbeininga er óskað eftir minnisblaði skipulagsstjóra og byggingarfulltrúa um þann feril sem slíkar aðgerðir geta kallað á með tilliti til gildandi deiliskipulagsáætlana og samþykktra byggingarnefndarteikninga."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×