Innlent

Fékk styttuna í hendurnar tveimur árum síðar

Brjóstmyndin sem hefur verið í óskilum hjá lögreglunni á Akureyri er komin til skila en eigandi brjóstmyndarinnar gaf sig fram við lögreglu í morgun. Lögreglan auglýsti eftir eigandanum í fjölmiðlum í vikunni en íbúi fann styttuna á gangstétt í Giljahverfinu á Akureyri.

Samkvæmt varðstjóra hjá lögreglunni á Akureyri kom dóttir eigandans á lögreglustöðina í morgun en hún bjó til styttuna fyrir tveimur árum þegar hún var við nám í Myndlistarskólanum á Akureyri. Hún gaf föður sínum styttuna sem kom henni fyrir úti í garði hjá sér. Styttunni var svo stolið fyrir tveimur árum en dúkkaði upp á gangstétt í Giljahverfi, langt frá heimili föðursins, fyrir tveimur vikum síðan.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er þjófurinn ófundinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×