Innlent

Hundasleðafólk etur kappi á Norðurlandi

Hundasleðamenn sækja meðal annars í Fellsendavatn ofan við Hrauneyjar. Mynd/Olivera Ilic
Hundasleðamenn sækja meðal annars í Fellsendavatn ofan við Hrauneyjar. Mynd/Olivera Ilic
Fyrsta Íslandsmeistaramótið í hundasleðaakstri fer fram á Mývatni á sunnudaginn. Hálfs árs gamalt Sleðahundafélag Íslands stendur fyrir keppninni. „Þetta er æðislegt,“ segir Anna Marín Kristjánsdóttir, stjórnarmaður í Sleðahundafélaginu, um þessa nýstárlegu íþrótt og dægradvöl hér á landi. Anna segir hóp áhugamanna hafa smíðað sautján hundasleða í fyrra og í tengslum við það stofnað Sleðahundafélagið um miðjan september í fyrra. Um áttatíu segir um áttatíu félagsmenn í Sleðahundaklúbbnum. Óljóst sé hversu margir muni keppa á Íslandsmeistaramótinu en þrjátíu séu skráðir á námskeið sem haldið verður á mótsstaðnum á morgun og á laugardaginn.

Að sögn Önnu er flestir sleðahundar hérlendis af tegundinni Siberian Husky. „En í raun er hægt að kenna öllum meðalstórum hundum að draga,“ undirstrikar hún. Sumir eigi einn hund en flestir tvo hunda eða fleiri. „Sleðarnir eru það léttir að menn sleppa alveg með tvo hunda í venjulega hobbíkeyrslu.“

Um reynslu íslensks sleðahundafólks segir Anna að það sé enn að afla þekkingar. „Maður lærir eins lengi og maður lifir. Það kemur ítalskur atvinnumaður á námskeiðið og ætlar að kenna okkur frá morgni til kvölds í tvo daga,“ segir hún.

Íslenskir sleðamenn hafa farið víða um landið. Tvo þeirra segir Anna hafa farið tuttugu kílómetra við Fellsendavatn í vetur og menn hafi farið fimmtán kílómetra á Nesjavallaleiðinni. Hún og eiginmaðurinn séu eiginlega forfallin.

„Þetta er staðalbúnaður á þakinu á bílnum okkar ef við skyldum rekast á skafl,“ segir Anna sem sjálf á tvo Siberian Husky hunda sem jafnan séu í skottinu á bílnum. Þeim finnist ógurlega skemmtilegt að draga sleðann. „Um leið og maður tekur upp dráttarbeislin liggur við að þeir klæði sig í þau sjálfir og rjúki út. Og svo halda þeir bara áfram og vilja ekki stoppa. Útiveran og samveran með hundunum er bara æðisleg.“

Anna er bjartsýn á að Íslandsmeistaramótið verði vel heppnað. „Það er nóg af snjó og vatnið er frosið þannig að þetta lítur mjög vel út.“

gar@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×