Innlent

Skotið á kyrrstæða bifreið á Eiðistorgi

Eiðistorg
Eiðistorg Mynd úr safni
Skotið var tveimur skotum, líklega úr loftbyssu, á kyrrstæða bifreið á Eiðistorgi á Seltjarnarnesi um klukkan átta í gærkvöldi.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var bifreiðin mannlaus þegar skotunum var hleypt af. Skotin tvö lentu á framrúðu bílsins sem brotnaði í kjölfarið.

Málið er í rannsókn en lögreglan hefur lýsingu á meintum gerenda frá vitni sem var í nágrenninu.

Frekari upplýsingar fást ekki frá lögreglu að sinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×