Innlent

Dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir frelsissviptingu

Héraðsdómur Reykjavíkur.
Héraðsdómur Reykjavíkur.
Kristmundur Sigurðsson var dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir fjölmörg brot, meðal annars frelsissviptingu.

Þannig svipti hann mann á sextugsaldri frelsi sínu, ásamt tveimur öðrum karlmönnum. Þeir hafa einnig verið dæmdir fyrir sama brot.

Mennirnir neyddu fórnarlambið til þess að millifæra rúmlega hundrað þúsund krónur af eigin reikning yfir á reikning eins af mönnunum.

Árásin átti sér stað í desember árið 2009 en hún var hrottafengin. Meðal annars tóku mennirnir fórnarlambið hálstaki og tróðu tusku upp í munninn á honum.

Þá var Kristmundur einnig dæmdur fyrir umferðalaga- og fíkniefnabrot.

Kristmundur, eða Mundi eins og hann er kallaður, er rúmlega fimmtugur að aldri. Sakaferill hans nær allt aftur til ársins 1976. Árið 1978 var Mundi dæmdur í tólf ára fangelsi fyrir manndráp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×