Innlent

Dregur úr glæpum

Ríkislögreglustjóri.
Ríkislögreglustjóri.
Þjófnaðarbrotum hefur fækkað verulega á fyrstu sex mánuðum ársins miðað við sambærilegar tölur síðustu tveggja ára, samkvæmt afbrotatíðindum Ríkislögreglustjóra.

Þá hefur hraðakstursbrotum einnig fækkað verulega á sama tíma en þau afbrot eru þó langflest samkvæmt skýrslu ríkislögreglustjóra, eða rúmlega tíu þúsund á fyrstu sex mánuðum.

Þeim fækkar um fimm þúsund sé sama tölfræði, fyrstu sex mánuðina, árið 2010, skoðuð.

Þjófnaðarbrotum fækkar um fimm hundruð á tveimur árum. Þau voru 2105 fyrstu sex mánuðina árið 2009. Nú eru þau 1606.

Innbrotum fækkar einnig töluvert á þessum þremur árum.

Hægt er að skoða tíðindin hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×