Lífið

Vill verða aðstoðarmaður Lady Gaga

Aðdáandi Atli Freyr Arnarson, starfsmaður Eskimo, er mikill aðdáandi Lady Gaga og sækist nú eftir að verða aðstoðarmaður hennar í einn dag.
Aðdáandi Atli Freyr Arnarson, starfsmaður Eskimo, er mikill aðdáandi Lady Gaga og sækist nú eftir að verða aðstoðarmaður hennar í einn dag.
„Það yrði náttúrlega algjör draumur að fá að hitta hana í eigin persónu, hvað þá að fá að aðstoða hana í heilan dag," segir Atli Freyr Arnarson, en hann hefur skráð sig í keppni þar sem fyrstu verðlaun eru að fljúga til London og aðstoða poppstjörnuna Lady Gaga í heilan dag.

„Það er frekar fyndin saga hvernig ég fann þessa keppni en í vikunni spáði herbergisfélagi minn fyrir mér í tarotspil og sagði að mér biði spennandi verkefni í nánustu framtíð. Svo var ég á netinu að bíða eftir að sjá nýjasta myndbandið hjá Lady Gaga og rakst þá á þess keppni," segir Atli Freyr en keppnin gengur út á að skrifa stuttan texta um sjálfan sig og aðdáun sína á poppdívunni og safna svo flestum „like-um" á sinn texta.

Keppnin er á vegum breska blaðsins Metro þar sem Lady Gaga verður listrænn gestastjórnandi í maí en sigurvegarinn fær að aðstoða hana í þeirri vinnu þann 16. maí næstkomandi.

Atli Freyr fer ekki leynt með aðdáun sína á poppstjörnunni og er með andlitsmynd af henni flúraða á upphandlegg sinn. Húðflúrið hefur vakið mikla athygli en heiðurinn af því á Gunnar Valdimar Sigurðsson.

„Ég hef engu að tapa á að taka þátt í þessari keppni og takmarkið mitt í er að fá hitta Lady Gaga einhvern tíma á lífsleiðinni," segir Atli og hvetur sem flesta til að fara inn á síðuna og hjálpa honum að hitta átrúnaðargoð sitt en kosningu lýkur 28 apríl. Slóðin á söguna hans Atla er Ladygagametro.com/us/view/1l9. - áp






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.