Lífið

Konur eru konum bestar

elly@365.is skrifar
Meðfylgjandi myndir voru teknar um helgina í Ráðhúsi Reykjavíkur þegar Korka, félagsskapur kvenna í nýsköpun, stóð fyrir viðburði undir yfirskriftinni: Konur eru konum bestar.

Þar kom fjöldi kvenna saman til að styðja hvor aðra. Þær skrifuðu meðal annars hvatningarorð í Athafnabók Actavis sem gefin var út í tilefni alþjóðlegrar athafnaviku. Bækurnar lögðu þær í sjóð og tóku eintak með heim að sama skapi. Þær voru síðan hvattar til að skrfa góðar hugmyndir og vinna úr þeim áfram.

Með þessu vildum við segja við hverja aðra að við stöndum saman, að við séum hverri annarri bestar. Þessi gjörningur var sá fyrsti á vegum Korku en áætlað er að gera fleiri í vetur, sagði Ingibjörg Gréta Gísladóttir, stofnandi Reykjavik Runway, en hún bauð konurnar velkomnar. Þá opnaði Þórunn Jónsdóttir, stofnandi FAFU, viðburðinn og Eva María Þórarinsdóttir Lange, stofnandi PINK Iceland, hélt hvatningarávarp.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×