Körfubolti

Teitur: Þetta var bara búið í hálfleik

Stefán Árni Pálsson skrifar
„Við spiluðum vel í fyrri hálfleik, en áttum aldrei séns í þeim síðari," sagði Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, eftir ósigurinn í kvöld.

„Við spiluðum mun betur í fyrri hálfleik í kvöld en síðan þegar liðin mættust í þessu húsi sem er að vissu leiti jákvætt," sagði Teitur.

„Það er erfitt að verjast KR í þessum ham þegar allt liðið er nánast í villuvandræðum. Við fáum ekkert annan séns, við verðum að vinna næsta leik".


Tengdar fréttir

Marcus og Mamma: Klárum dæmið í næsta leik

"Það sem hefur alltaf skilað okkur sigrum er varnarleikur okkar í síðari hálfleik. Um leið og liðið nær að stoppa 2-3 sóknir frá andstæðingnum þá smitað þar frá sér og við eflumst,“ sagði Walker.

Umfjöllun: KR átti í engum vandræðum með Stjörnuna

KR-ingar settust í bílstjórasætið í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í kvöld þegar þeir unnu Stjörnuna, 101- 81, í þriðja leik liðanna og leiða því einvígið 2-1. KR keyrði yfir Stjörnuna í þriðja leikhlutanum og voru tuttugu stigum yfir þegar einn leikhluti var eftir. Marcus Walker átti enn einn stórleikinn og skoraði 33 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×