Innlent

Búið að opna Biskupstungnabraut

Mynd tengist frétt ekki beint.
Mynd tengist frétt ekki beint.
Biskupstungnabraut hefur nú verið opnuð á ný eftir umferðarslys sem varð þar fyrr í dag.

Enn er þó verið að hreinsa á slysstaðnum og geta orðið smávegis tafir á umferð á meðan, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Umferðarslys varð á kaflanum milli Þrastarlundar og Þingvallaafleggjara. Einn farþegi beinbrotnaði við áreksturinn, en fimm aðrir sluppu með minniháttar meiðsli.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×