Innlent

Annasöm nótt hjá slökkviliðsmönnum

Mynd/Pjetur
Mikill erill var hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins í nótt. Dælubílar fóru í 16 útköll og þá voru 46 sjúkraflutningar.

Skömmu fyrir klukkan eitt var tilkynnt um reyk í mannlausri íbúð í Seljahverfi. Flugeldi barst inni í íbúðina og þurfti að reykræsta hana, en mikill reykur var í íbúðinni samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá slökkviliði. Þá var kveikt í blaðagámum og ruslatunnum víðsvegar um höfuðborgarsvæðið.

Sjúkraflutningamenn fóru í þrjú útköll í nótt vegna minniháttar flugeldaóhappa, að sögn varðstjóra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×