Innlent

Tekinn tvisvar í annarlegu ástandi undir stýri

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Karl á þrítugsaldri var tekinn í tvígang fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur um helgina. Fyrst var hann stöðvaður í miðborginni um miðnætti á föstudagskvöld og reyndist þá vera í annarlegu ástandi við stýrið.

Aðfaranótt sunnudags var maðurinn aftur kominn á stjá og ökuferð hans var stöðvuð í miðborginni vegna þess að hann var ekki í ökuhæfu ástandi. Maðurinn hefur áður komið við sögu hjá lögreglu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×